0.6 C
Selfoss

Landsbankinn endurnýjar samstarfssamning við Handknattleiksdeild UMFS

Vinsælast

Landsbankinn og Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa endurnýjað samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Um langt skeið hefur Landsbankinn verið einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar og er afar stoltur af því samstarfi, sem og árangri deildarinnar. Samstarfið styður vel við markmið bankans að efla íþrótta- og æskulýðsstarf á svæðinu.
Handknattleiksfólk á Selfossi hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs við bankann. Sem fyrr byggir starf deildarinnar á góðum stuðningi samstarfsaðila félagsins og því er mikill akkur í samstarfi við öflugt fyrirtæki á borð við Landsbankann.

Nýjar fréttir