1.7 C
Selfoss

Hamarsmenn halda sigurgöngu sinni áfram

Vinsælast

Hamarsmenn halda sigurgöngu sinni áfram í úrvalsdeild karla í blaki. Eftir tvo góða sigra á heimavelli heimsóttu Hamarsmenn Aftureldingu í Mosfellsbæ þann 2. nóvember og unnu þar 3-0 sigur í þó annars nokkuð jöfnum leik. Um helgina heimsótti liðið svo Vestra á Ísafjörð.

Leikurinn gegn Vestra var hörku spennandi og þurfti upphækkun til að klára fyrstu hrinuna en henni lauk með 28-30 sigri Hamars. Heimamenn unnu svo aðra hrinu 25-21 en þá var eins og öll orka væri úr Vestramönnum og Hamar vann þriðju hrinuna örugglega 25-15.

Vestramenn náðu sér þó aðeins á strik í fjórðu hrinu en það dugði ekki til og Hamar vann hrinuna 25-21 og leikinn þar með 3-1.

Með þessum tveimur leikjum hafa Hamarsmenn nú leikið jafn marga leiki og hin liðin í toppbaráttunni og eru því komnir á topp deildarinnar, ósigraðir með 12 stig en KA er í öðru sæti með 8 stig.

Random Image

Nýjar fréttir