8.9 C
Selfoss

Athafnastjóraþing á Hellu

Vinsælast

Margrét Harpa verður athafnastjóri

Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi á Lambhaga, gefur saman sín fyrstu hjón, sem komu á vegum ferðaskrifstofunnar Pink Iceland. Ljósmyndari: Inga Auðbjörg K. Straumland

Fimmtán nýir athafnastjórar útskrifuðust úr nýliðaþjálfun Siðmenntar á Athafnastjóraþingi Siðmenntar á Hellu um helgina. Um er að ræða hóp nema sem hefur verið í þjálfun frá því í vor, en þjálfunin byggði á námskeiðum og handleiðslu. Athafnastjórarnir eru nú tilbúnir til að taka að sér athafnir á lífsins tímamótum, svo sem nafngjafir, fermingar og hjónavígslur, en mörg þeirra hafa þegar tekið sín fyrstu skref í sumar. Ein af nýjum athafnastjórum Siðmenntar er Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi á Lambhaga.

 Gefandi að gefa saman

Margrét Harpa segir það mjög kærleiksríkt og gefandi að taka þátt í svona tilfinningaríkum stundum. „Mér líður rosalega vel þegar ég er búin að gifta fólk. Væntumþykjan er allsráðandi.“ Hún er ánægð með að hafa fengið að gangast undir þjálfun með svona mörgum ólíkum einstaklingum. „Við komum alls staðar að á landinu en náum saman út af þessum sameiginlegu gildum.“

Hinseginfræðsla og norðurljós

Athafnaþingið á Hellu var það fyrsta sinnar tegundar, en þar komu saman um 40 athafnastjórar, frá landinu öllu. Athafnastjórarnir fengu hinseginfræðslu frá Samtökunum ‘78, fyrirlestur frá Sýslumannsembættinu í Vestamannaeyjum og tóku þátt í ritlistarsmiðju sem Bragi Páll Sigurðarson, rithöfundur og nýútskrifaður athafnastjóri, stýrði. Athafnastjórarnir voru ánægð með aðstöðuna á Hellu og ekki spillti fyrir upplifuninni að norðurljósin dönsuðu á næturhimninum.

Nýjar fréttir