3.9 C
Selfoss

Sunnlensk fyrirtæki í útrás

Vinsælast

Markaðsstofa Suðurlands tók þátt í ferðakaupstefnunni Vestnorden daganna 19. – 22. september sl. Að þessu sinni fór kaupstefnan fram í Nuuk í Grænlandi en hún fer fram á Íslandi annað hvert ár og til skiptis í Færeyjum og Grænlandi þess á milli. Skráðir kaupendur voru rúmlega 150 og seljendur um 100.

Mikill áhugi á Suðurlandi

Sex sunnlensk fyrirtæki voru meðal sýnenda. Markaðsstofa Suðurlands sendi tvo starfsmenn að þessu sinni sem skilaði sér í rúmlega 40 fundum við hina ýmsu aðila og fyrirtæki. Greinilegt var að mikill áhugi var á Suðurlandi og kynnti Markaðsstofan það helsta í nýjungum ásamt því að minna á önnur fyrirtæki, áfangastaði og náttúruperlur.

Markaðsstofan mun á næstu dögum fylgja fundunum eftir með því að senda kaupendunum þær upplýsingar sem óskað var

eftir og koma þeim í samband við samstarfsaðila eftir atvikum. Sömuleiðis verður sendur upplýsingapóstur til samstarfsaðila þar sem stiklað verður á stóru um það sem fram fór á hverjum fundi fyrir sig og þar geta samstarfsaðilar séð möguleg sóknartækifæri í samstarfi við kaupendur. Næst mun Vestnorden fara fram í Reykjavík daganna 17. – 19. október 2023 og að sjálfsögðu mun Markaðsstofa Suðurlands taka þátt.

Í byrjun september tók fulltrúi Markaðsstofunnar einnig þátt í vinnustofum á vegum Íslandsstofu í þremur borgum í Bandaríkjunum, Raleigh/Durham, Denver og Minneapolis. Gestir vinnustofanna voru um 70, góð blanda ferðasala sem höfðu selt Ísland lengi og þekktu svæðið því vel og aðila sem voru nýir í faginu. Gestirnir höfðu mikinn áhuga á að fá upplýsingar um Suðurland og allt sem það hefur upp á að bjóða.

Nýjar fréttir