8.4 C
Selfoss

Lífland opnar verslun á Selfossi  

Vinsælast

Lífland lýkur upp dyrum að nýrri verslun á Selfossi í björtum og rúmgóðum húsakynnum að Austurvegi 69 í þessari viku. Í tilefni opnunarinnar verður slegin upp opnunarhátíð laugardaginn 1. október fyrir gesti og gangandi sem vilja fagna með okkur.

Í boði verða glæsileg opnunartilboð og glaðningur fyrir börn. Þá verður boðið upp á grillaðar pylsur, flatkökur, kaffi og köku frá kl. 12-15, auk þess sem  Karlakór Hreppamanna stígur á stokk og tekur nokkur lög að sunnlenskum sveitasið. Að auki verður einn heppinn vinningshafi dreginn úr „Lífland á Selfossi“ hópnum á Facebook sem vinnur 25.000 króna úttekt í versluninni.

„Við bindum vonir við að nærumhverfið taki nýrri verslun Líflands fagnandi og hlökkum til að taka á móti sem flestum á opnunarhátíðinni,“ segir Stella Björg Kristinsdóttir, frakmvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Líflandi.

Verslunin býður upp á fjölbreytt úrval af búrekstrar- og landbúnaðarvöru svo sem áhöldum, hreinlætisvörum, fóðri og bætiefnum. Hjá Líflandi er einnig breitt úrval af girðingarefnum, meindýravörnum, gæludýravöru, útivistarfatnaði og allt til hestamennsku svo sem reiðfatnaður, skeifur, fóður, reiðtygi og undirburður.

Verslunarstjóri á Selfossi verður Guðbjörg Jónsdóttir sem er mörgum sunnlenskum bændum kunn. Hún er fyrrverandi kúabóndi sem hefur meðal annars unnið að félagsmálum bænda í gegnum árin. Með henni verða Sjöfn Finnsdóttir og Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem báðar eru nýlega fluttar í Flóann.

Með nýju versluninni verða verslanir Líflands alls sex talsins, en fyrir eru verslanir á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Reykjavík og Hvolsvelli sem er ætlað að bæta þjónustu í heimabyggð við bændur og aðra íbúa eða ferðamenn á svæðinu.

Nýjar fréttir