7.8 C
Selfoss

Fríska Sólheimahlaupið næsta laugardag

Vinsælast

Laugardaginn 24. September nk. verður haldið hið árlega Fríska Sólheimahlaup.  Þá fara hlauparar úr hlaupahópnum Frískum Flóamönnum í heimsókn á Sólheima og bjóða Sólheimabúum og öllum áhugasömum, í hreyfingu frá Borg í Grímsnesi að Sólheimum.  Öllum er frjálst að taka þátt með því að hlaupa, labba eða hjóla.

Kl. 9:30 er mæting við Sundhöll Selfoss, sameinast í bíla og ekið að Borg í Grímsnesi.  Kl. 10:00 verður lagt af stað frá Borg og hlaupið, hjólað og gengið að Sólheimum, um 9 km. leið.

Að loknu hlaupi verður athöfn í Grænu könnunni þar sem Frískir Flóamenn munu afhenda framfarabikarinn sem þeir gáfu Sólheimum. Hann hlýtur sá Sólheimaíbúi sem hefur sýnt framfarir, góða ástundun í íþróttum eða almennri hreyfingu og hefur verið hvetjandi og öðrum góð fyrirmynd.

Nýjar fréttir