4.9 C
Selfoss

Sif á Selfossi næstu tvö ár

Vinsælast

Varnarjaxlinn, Sif Atladóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Selfoss.

Sif gekk í raðir Selfoss fyrir tímabilið frá sænska félaginu Kristianstad. Sif var síðan hluti af leikmannahópi íslenska landsliðsins sem spilaði á Evrópumeistaramótinu á Englandi fyrr í sumar.

„Það er gott að vera á Selfossi. Vegferðin heldur áfram og ég hlakka til að halda áfram að vinna með liðinu að bæta okkar leik. Við höfum verið að taka stór skref í sumar og verður gaman að bæta í það á komandi ári,“ sagði Sif.

Það er farið að styttast í annan endann á Bestu deildinni þetta árið. Stelpurnar mæta KR að Meistaravöllum sunnudaginn 18. september klukkan 14:00.

Nýjar fréttir