0.3 C
Selfoss

Viljayfirlýsing um græna iðngarða undirrituð

Vinsælast

Orkídea, samstarfsverkefni um nýsköpun, og sveitarfélagið Rangárþing ytra hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um að koma á fót Grænum iðngarði í sveitarfélaginu. Grænn iðngarður nær yfir ákvæðið svæði með ólíkum fyrirtækjum þar sem fyrirtækin leitast við að ná betri nýtni auðlinda, hreinni framleiðslu, stuðla að samvinnu fyrirtækja, draga úr loftslagsbreytingum og mengun ásamt því að fylgja félagslegum stöðlum, samnýta innviði og öðlast betri stýringu á áhættu. Grænn iðngarður er liður í því að byggja upp hringrásarkerfi í framleiðslu, sem byggjast á því lágmarka úrgang og hámarka nýtingu auðlinda. Jafnframt gefa iðngarðar, grænir sem aðrir, færi á sameiginlegum innkaupum orku og þjónustu sem er hagfelld fyrir einstök fyrirtæki iðngarðsins.

Orkídea og Rangárþing ytra munu vinna sameiginlega að kortlagningu á heppilegri atvinnustarfsemi og viðskiptatækifærum sem gætu átt heima innan Græns iðngarðs, kortlagningu hindrana og kynningu á möguleikum Græns iðngarðs. Orkídea mun leita upplýsinga og gagna sem geta nýst verkefninu og aðstoða sveitarfélagið í undirbúningi þess. Rangárþing ytra mun fyrir sitt leyti stýra skipulagsvinnu og sýn fyrir garðinn. Aðilar yfirlýsingar munu hafa samvinnu um að útvega fjármagn til stofnunar garðsins með umsóknarvinnu og/eða samtölum við opinbera aðila og fjárfesta.

Skoðuð verða sérstaklega verkefni á sviði nýsköpunar í matvælaframleiðslu, líftækni og sjálfbærni sem gætu átt heima í Grænum iðngarði.

Random Image

Nýjar fréttir