Nú þegar september er genginn í garð hafa sauðfjárbændur í nógu að snúast og smölun stendur sem hæst, en smalar hafa verið einstaklega heppnir með veður þetta árið.Réttir eru óhjákvæmilegur fylgifiskur þessara leita eins og alþjóð veit og hér að neðan má sjá tímasetningar þeirra sem framundan eru á Suðurlandi.
Föstudagur 9. september
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft.
Laugardagur 10. september
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn.
Tungnaréttir í Biskupstungum
Grafarrétt í Skaftártungu
Skaftárrétt
Sunnudagur 11. september
Haldréttir í Holtamannaafrétti
Laugarvatnsrétt, Árn
Þóristunguréttir, Holtamannaafr
Lögrétt í Álftaveri
Mánudagur 12. september
Fjallrétt við Þórólfsfell
Laugardagur 17. september
Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum
Húsmúlarétt við Kolviðarhól
Fjárborgarrétt í Hólmsheiði
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit
Sunnudagur 18. september
Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð
Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit
Mánudagur 19. september
Grafningsrétt í Grafningi
Fimmtudagur 22. september
Landréttir við Áfangagil
Sunnudagur 25. september
Selvogsrétt í Selvogi
Austur-Landeyjaréttir hjá Grenstanga