6.1 C
Selfoss

Skírn í Laugarvatni

Vinsælast

Föstudaginn 26. ágúst síðastliðinn lauk nýnemaviku í ML með gleðigöngu og skírn í Laugarvatni. Að skírn lokinni eru nýnemar formlega orðnir ML-ingar og voru þeir boðnir hjartanlega velkomnir í skólann að athöfn lokinni.

Það var sérstakt fagnaðarefni að hægt væri að virða þessa hefð með því sniði sem við áttum að venjast fyrir Covid-19 faraldurinn og óhætt að segja að gleðin hafi skinið úr hverju andliti. Veðrið lék við ML-inga þennan dag og sólin glampaði á vatninu og í augum viðstaddra.

Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá ML og hér er hægt að skoða fleiri myndir af þessum skemmtilega degi.

Nýjar fréttir