5.4 C
Selfoss

Lögreglan varar við ferðalögum um hálendið

Vinsælast

Lögreglan á Suðurlandi vill koma þeirri ábendingu á framfæri til ferðamanna á hálendi, þá sérstaklega á Fjallabaki að aftakaveður er á svæðinu. Hálendisvakt Björgunarsveita í Landmannalaugum í samvinnu við landverði á svæðinu eru að vinna að því að aðstoða ferðamenn bæði á tjaldsvæði og nærumhverfi. Nokkur útköll hafa verið þar sem ferðamenn hafa ekki treyst sér til að ganga lengra á vinsælum gönguleiðum eins og Fimmvörðuhálsi og Laugarveginum.

Fyrri grein
Næsta grein

Nýjar fréttir