-0.5 C
Selfoss

Landsmót 50+ í Borgarnesi

Vinsælast

Nokkrir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt í Landsmóti 50+ sem haldið var í Borgarnesi dagana 24. – 26. júní sl. Þeir kepptu í frjálsíþróttum, sundi, golfi og ringó og unnu til verðlauna í nokkrum greinum.

Ómar Franklínsson varð þrefaldur Landsmótsmeistari í 50 m bringusundi og 50 og 100 m skriðsundi í  flokki 75- 79 ára.  Yngvi Karl Jónson vann kúluvarp og kringlukast  í flokki 55-59 ára og Sigmundur Stefánsson vann lóðkast í  flokki 75-79 ára.

Sveit HSK var meðal þátttökuliða í ringói og varð í öðru sæti. Í liðinu voru þeir Ólafur Elí Magnússon, Markús Ívarsson, Jón M. Ívarsson, Guðmann Óskar Magnússon og Yngvi Karl Jónsson.

Heildarúrslit mótsins má nálgast á www.umfi.is.

Random Image

Nýjar fréttir