0.5 C
Selfoss

Banaslys í Reynisfjöru

Vinsælast

Samkvæmt dagbók lögreglu lést erlendur ferðamaður, karlmaður á áttræðisaldri í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó. Eiginkona mannsins lenti í sömu öldu en tókst, fyrir snarræði nærstaddra, sem komu til aðstoðar, að bjarga sér áður en hún sogaðist út í brimið. Björgunarsveitir af Suðurlandi og úr Vestmanneyjum voru kallaðar til aðstoðar ásamt þyrlusveit LHG. Aðstæður til aðgerða úr landi voru erfiðar og hættulegar viðbragðsaðilum vegna mikils brims. Maðurinn var hífður upp í þyrluna strax og hún kom á staðinn en reyndist þá látinn.
Hjónin voru í stærri hóp í skipulagðri ferð á vegum ferðaskrifstofu.

Unnið er að rannsókn slyssins.

Random Image

Nýjar fréttir