0.6 C
Selfoss

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Árborg

Vinsælast

Á fjölmennum félagsfundi Samfylkingarinnar í Árborg þann 24.mars var samþykktur einróma framboðslisti vegna sveitastjórnarkosninga þann 14.maí nk.
Listann skipa reynslumiklir einstaklingar sem sitja í bæjarstjórn Árborgar auk nýrra frambjóðenda sem nú stíga sín fyrstu skref í sveitarstjórnarmálum, fullir áhuga á að gera gott sveitarfélag enn betra.
Í hópnum eru einstaklingar með víðtæka þekkingu og reynslu víðsvegar að úr samfélaginu og spegla vel þá miklu breidd sem býr í ört vaxandi samfélagi.
Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, leiðir listann, annað sætið skipar Sigurjón Vídalín Guðmundsson, bæjarfulltrúi, það þriðja Björgvin G. Sigurðsson, fyrrv. alþingismaður og í fjórða sætinu er Ástfríður M. Sigurðardóttir, gæðatjóri MAST.
Í fimmta sætinu er María Skúladóttir, grunnskólakennari og í því sjötta Viktor S. Pálsson, lögfræðingur og varaþingmaður.
Listinn mun á næstunni kynna stefnumál sín en Samfylkingin hefur verið í meirihlutasamstarfi í Árborg á Framboðslisti Samfylkingarinnar í Árborg 2022:

1 Arna Ír Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi
2 Sigurjón Vídalín Guðmundsson, jarðfræðingur og bæjarfulltrúi
3 Björgvin Guðni Sigurðsson, sjálfstætt starfandi
4 Ástfríður M. Sigurðardóttir, gæðastjóri MAST
5 María Skúladóttir grunnskólakennari
6 Viktor Stefán Pálsson lögfræðingur
7 Svala Norðdahl lífskúnstner
8 Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri
9 Elísabet Davíðsdóttir laganemi
10 Jean Rémi Chareyre, sjálfstætt starfandi
11 Herdís Sif Ásmundsdóttir hjúkrunarfræðingur
12 Jóhann Páll Helgason fangavörður
13 Drífa Björt Ólafsdóttir, kennaranemi og leiðbeinandi
14 Egill Ö. Hermannsson, háskólanemi og varaform. ungra umhverfissinna
15 Guðrún Ragna Björgvinsdóttir nemi
16 Hjalti Tómasson eftirlitsfulltrúi
17 Drífa Eysteinsdóttir hjúkrunarfræðingur
18 Elfar Guðni Þórðarson listmálari
19 Þorvarður Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri SASS
20 Sigríður Ólafsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi
21 Margrét Frímannsdóttir húsmóðir
22 Sigurjón Erlingsson múrari

Fréttatilkynning frá Samfylkingunni í Árborg.

Nýjar fréttir