1.7 C
Selfoss

Framsókn og aðrir framfarasinnar í Rangárþingi eystra

Vinsælast

Framboðslisti Framsóknar- og annarra framfarasinna í Rangárþingi eystra vegna sveitarstjórnarkosninganna 2022 var samþykktur á opnum félagsfundi Framsóknarfélags Rangæinga fimmtudaginn 24. mars 2022.

Uppstillingarnefnd, skipuð Bergi Pálssyni og Sigrúnu Þórarinsdóttur, hefur undanfarnar vikur unnið að uppstillingu listans. Óskað var eftir áhugasömum einstaklingum sem vildu taka sæti á listanum og fóru viðtökur langt fram út væntingum. Uppstillingarnefnd eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf.

Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri Rangárþings eystra skipar fyrsta sæti listans, í öðru sæti er Rafn Bergsson, bóndi í Hólmahjáleigu A-Landeyjum, í þriðja sæti er Bjarki Oddsson, lögregluvarðstjóri og fjórða sæti skipar Guri Hilstad Ólason kennari.

Listinn er skipaður kraftmiklu fólki á öllum aldri úr Rangárþingi eystra. Þeir sem skipa listann koma úr mismunandi stéttum samfélagsins með fjölbreyttan bakgrunn. Öll höfum við þann metnað að vinna af krafti við að styrkja og efla okkar góða samfélag.Við hlökkum til komandi vikna í kosningabaráttunni og vonumst til að kosningabaráttan verði háð á drengilegan hátt þar sem málefnin og hagsmunir sveitarfélagsins verða hafðir að leiðarljósi.

Við teljum að það sé mikilvægt að heyra raddir sem flestra og því viljum við eiga gott samtal við íbúa Rangárþings eystra. Við munum auglýsa opna fundi okkar þar sem íbúum er boðið að koma og hafa áhrif á þau stefnumál sem við munum leggja upp með.

Framboðslisti Framsóknar- og annarra framfarasinna í Rangárþingi eystra fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022 er þannig skipaður:

  1. Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri
  2. Rafn Bergsson, bóndi
  3. Bjarki Oddsson, lögregluvarðstjóri
  4. Guri Hilstad Ólason, kennari
  5. Kolbrá Lóa Ágústsdóttir, starfsmaður á Kirkjuhvol
  6. Sigurður Þór Þórhallsson, starfsmaður íþróttamiðstöðvarinnar
  7. Stefán Friðrik Friðriksson, sérfræðingur í markaðsmálum
  8. Ingibjörg Marmundsdóttir, eldri borgari
  9. Ástvaldur Helgi Gylfason, leiðbeinandi og þjálfari
  10. Oddur Helgi Ólafsson, nemi
  11. Lea Birna Lárusdóttir, nemi
  12. Konráð Helgi Haraldsson, bóndi
  13. Ágúst Jensson, bóndi
  14. Ásta Brynjólfsdóttir, sérkennari

Á meðfylgjandi mynd má sjá mynd af þeim sem skipa fjögur efstu sæti listans.

Random Image

Nýjar fréttir