1.1 C
Selfoss

Framboðslisti vinstri grænna í Árborg

Vinsælast

Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur, leiðir lista Vinstri grænna sem samþykktur var á félagsfundi VG í Árborg í gærkvöld. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra var sérstakur gestur fundarins og ræddi stöðu stjórnmálanna við fundargesti. Í öðru sæti listans í Árborg er Guðbjörg Grímsdóttir framhaldskólakennari og Jón Özur Snorrason í þriðja. Formaður Vinstri grænna í Árborg, Sædís Ósk Harðardóttir, segir að fundurinn hafi verið kraftmikill og hugur sé í fólki. Sædís situr sjálf í fjórða sæti á listanum sem hér má sjá í heild.

1. Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur

2. Guðbjörg Grímsdóttir framhaldsskólakennari

3. Jón Özur Snorrason framhaldsskólakennari

4. Sædís Ósk Harðardóttir, deildarstjóri grunnskóla

5. Guðrún Runólfsdóttir einkaþjálfari

6. Leifur Gunnarsson lögfræðingur

7. Pétur Már Guðmundsson bóksali

8. Kristrún Júlía Halldórsdóttir myndlistakona

9. Alex Máni Guðríðarson fuglaljósmyndari

10. Ágústa Eygló Backman fiskeldisfræðingur

11. Magnús Thorlacius fiskalíffræðingur

12. Dagmara Maria Zolich félagsliði

13. Ágúst Hafsteinsson pípulagningameistari

14. Nanna Þorláksdóttir, fyrrverandi skólafulltrúi og eftirlaunaþegi

15. Birgitta Ósk Hlöðversdóttir, framhaldsskólanemi og tamningakona

16. Ægir Pétur Ellertsson, framhaldsskólakennari

17. Margrét Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur

18. Anna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur

19. Jóhann óli Hilmarsson fuglafræðingur

20. Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir efnafræðingur

21. Þorsteinn Ólafsson dýralæknir

22. Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi og eftirlaunaþegi

Fréttatilkynning frá Vinstri grænum í Árborg

Nýjar fréttir