4.4 C
Selfoss

Fimm frambjóðendur hjá Framsóknarfélagi Árborgar

Vinsælast

Kjörstjórn Framsóknarfélags Árborgar hefur samþykkt gild framboð fimm frambjóðenda sem gefið hafa kost á sér í lokað prófkjör félagsins sem fram fer laugardaginn 12. mars nk. þar sem kosið verður í þrjú efstu sæti framboðslistans samkvæmt framboðsreglum flokksins.

Er kosningin bindandi fyrir þrjú efstu sætin.

Eftirtaldir frambjóðendur verða í kjöri:

1. sæti – Helgi Sigurður Haraldsson og Stefán Gunnar Stefánsson.

2. sæti – Ellý Tómasdóttir

2. – 3. sæti – Páll Sigurðsson

3. sæti – Díana Lind Sigurjónsdóttir

Prófkjörið fer fram laugardaginn 12. mars n.k. frá kl. 10:00 – 18:00 í Rauðakross salnum á Eyravegi 23 Selfossi.

Utankjörfundar atkvæðagreiðsla verður þriðjudaginn 8. mars, miðvikudaginn 9. mars og fimmtudaginn 10. mars frá kl 17:00 til kl 20:00 á Eyravegi 15 Selfossi.

Rétt til að taka þátt í lokuðu prófkjöri eiga allir flokksbundnir félagar í Framsóknarflokknum og áttu lögheimili í sveitarfélaginu Árborg 9. febrúar 2022.

Kjörstjórn
Framsóknarfélags Árborgar

Nýjar fréttir