7.8 C
Selfoss

Nýsköpun og öflugt atvinnulíf í Árborg

Vinsælast

„Sveitarfélagið á að vera í virku samtali við atvinnulífið, efla nýsköpun og vinna að því að fjölga atvinnutækifærum í sveitarfélaginu með markvissum hætti.” 

Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið undanfarin ár og er fjöldi íbúa nú í kringum 11 þúsund. Flesta virka daga fer hluti íbúa til vinnu á höfuðborgarsvæðið eða til nágrannasveitarfélaga sem er í sjálfu sér eðlilegt upp að vissu marki. Það verður þó með auknum íbúafjölda að huga að fjölgun fjölbreyttra atvinnutækifæra í Árborg með það að markmiði að íbúar geti haft fleiri valmöguleika um áhugaverð störf í nærsamfélaginu, stutt frá heimili og fjölskyldu. 

Atvinnustefna og skýr markmið 

Fyrirtækjum er í auknum mæli ýtt frá ákveðnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu og Árborg gæti verið kjörin staður til uppbyggingar fyrir mörg þeirra. Nýtt skrifstofuhótel mun gefa aukin tækifæri en samfélag með góða skóla, öflugt íþrótta- og frístundastarf, nægt landrými og góðar tengingar við helstu samgönguleiðir, ásamt inn- og útflutningshöfn í næsta nágrenni ætti að vera kjörinn staður til frekari uppbyggingar á atvinnustarfsemi. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér og vil ég koma að því að leiða sveitarfélagið í samstarfi við hagsmunaaðila að setja fram stefnu með skýr framtíðarmarkmið um hvernig atvinnuuppbyggingu við viljum sjá í sveitarfélaginu. 

Tækifæri til nýsköpunar 

Sveitarfélagið Árborg á að vera í virku samtali við fjölbreyttar atvinnugreinar í samfélaginu. Þannig getur sveitarfélagið verið betur í stakk búið að skapa umhverfið sem eflir og hvetur til nýsköpunar og þróunar. Hvort sem um er að ræða verslun, ferðaþjónustu eða fjölbreyttan iðnað. 

Gott samstarf grunnskóla í Árborg, FSu, FabLab Selfoss, Háskólafélags Suðurlands, atvinnulífsins og tengdra aðila er mikilvægt til að efla og ala upp nýsköpunarhugsun hjá ungmennum í samfélaginu. Slíkt samstarf getur búið til rétta umhverfið og alið af sér frumkvöðla sem fengu að byrja að prófa hluti í grunnskóla, þróuðu áfram í framhaldsskóla og gerðu hugmynd að veruleika í frumkvöðlasetri háskólafélagsins. Þorum að hugsa um stóru myndina og sköpum aðstæður þar sem ný tækifæri verða til. 

Viltu ræða málin frekar? 

Þar sem stutt er í prófkjörið laugardaginn 19. mars nk. vil ég nýta tímann vel og reyna að hitta sem flest fyrirtæki og íbúa. Það er því velkomið að senda erindi á bragibjarna1@gmail.com og óska eftir heimsókn til að spjalla um samfélagið okkar og hvernig við getum í sameiningu gert Árborg enn betri.

Bragi Bjarnason
Frambjóðandi í 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Sveitarfélaginu Árborg
www.bragibjarna.is

Nýjar fréttir