11.7 C
Selfoss

Kæru vinir og íbúar í Árborg

Vinsælast

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Árborg sem fer fram 19. mars næstkomandi. Í samfélagi er mikilvægt að sem fjölbreyttustu raddir heyrast og vil ég vera fulltrúi ungs fólks í bæjarstjórn.

Ég er fæddur og uppalinn Selfyssingur og verð 24 ára í vikunni. Eftir að ég útskrifaðist úr FSu hef ég starfað með börnum og unglingum í félagsmiðstöðinni Zelsíuz og í Vallaskóla. Það er forréttindi að vinna með ungu fólki og það vil ég gera til framtíðar. Þess vegna er ég í kennaranámi og er að klára mitt þriðja ár í Háskóla Íslands.

Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að ég vil leggja mitt að mörkum til að gera það samfélag sem ég vil búa í en betra til framtíðar. Byggja þarf upp innviði án þess að skuldsetja komandi kynslóðir, fjárhagsstaða sveitarfélagsins er orðinn grafalvarleg og stefnir skuldaviðmið upp í 180%.

Á komandi kjörtímabili þarf að rétta úr kútnum fjárhagslega og greiða niður skuldir. Ásamt því þurfum við að ná í skottið á okkur í innviða uppbyggingu og vera með klárt skólapláss fyrir börn og ungmenni í varanlegu húsnæði til framtíðar. Þá þarf að halda áfram að gæta þess að nóg sé af heitu vatni og byggja nýja kennslulaug fyrir skólasund. Einnig þarf að hefja framkvæmdir við skólphreinsistöð og gæta þess að skólpið renni ekki ósnert út í náttúruna.

Áherslur mínar munu vera á barnvænt samfélag, þar sem öll börn og ungmenni geti náð markmiðum sínum og draumum. Í barnvænu samfélagi þar sem allir geta blómstrað og fjölskyldur verða hafðar í fyrirrúmi.

Kæru vinir ég vona að ég geti treyst á ykkur 19. mars, því þið munuð geta treyst á mig. Því óska ég eftir stuðningi ykkar í 3. sæti í komandi prófkjöri.

Kveðja Sveinn Ægir

Nýjar fréttir