-0.5 C
Selfoss

Yfirlýsing frá Foreldrafélagi BES

Vinsælast

Foreldrafélag Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri tekur undir heils hugar undir ályktun frá hverfisráði Eyrarbakka þann 19. janúar 2022. Við viljum einnig koma á framfæri þakklæti til stjórnenda og starfsfólks skólans um að óska eftir úttekt á húsnæðinu sem og hversu hratt og örugglega var brugðist við niðurstöðum úttektarinnar!

Við viljum einnig þakka starfsfólki skólans fyrir þá eljusemi að koma skólastarfinu aftur í gang með litlum sem engum fyrirvara um allsherjar breytingar á aðstæðum, bæði nemenda og starfsfólks. Með því að halda áfram kennslu í bráðabirgða húsnæði staðsettu á Eyrarbakka ætti að skapa sem minnst rask og óöryggi fyrir nemendur meðan verið er að skoða stöðuna.

Við teljum einnig að sjaldan eða aldrei hafi þörfin á uppfyllingu loforða við endurnýjun á skólahúsnæði verið jafn brýn. Við lítum til þeirra lausnar að nýtt skólahúsnæði unglingadeildar verði sett í algjöran forgang hjá Árborg.

Til hefur staðið að byggja nýtt húsnæði til að hýsa miðstig og unglingastig frá því árið 2010 og teljum við í foreldrafélaginu löngu orðið tímabært að efna þau loforð sem þá voru gefin. Það má líka telja til að síðan 2010 hefur miðstigið verið í húsnæði skólans á Stokkseyri sem einungis átti að hýsa yngsta stig skólans sem og verk- og listgreinar. Plássleysis hefur virkilega bitnað á skólastarfi og er nú starfsemi skólans á víð og dreif, með engri varanlegri lausn í sjónmáli. Á síðustu önn kom svo enn önnur breyting til þegar ljóst var að íþróttahúsið á Stokkseyri er ekki lengur talið boðleg til kennslu og þar með eru nemendur komnir í bráðabirgða íþróttahúsnæði á sama tíma og unglingadeild er á hrakhólum.

Samkvæmt nýkynntu deiliskipulagi Árborgar er mikil vöxtur í báðum þorpunum við ströndina og mætti ætla að með þessum vexti myndi fylgja fjármagn til uppbyggingar á skóla og frístundamálum. En eins og málin virðast standa í dag hafa hagsmunir barna okkar og eðlilega krafa um boðlegt skólahúsnæði ekki verið ofarlega á forgangslista bæjarstjórnar Árborgar síðastliðin 15 ár. Nú er komin tími til að sýna í verki að þorpin við ströndina séu ekki að mæta afgangi með því að hefja raunverulegt samtal um byggingu nýs skólahúsnæðis fyrir mið- og unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Nú er komin tími til að orðum fylgi efndir!

Stjórn foreldrafélagsins

Nýjar fréttir