-0.9 C
Selfoss

Vegna húsnæðismála BES á Eyrarbakka

Vinsælast

Síðla haust 2021 óskuðu stjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri eftir því við umsjónarmann fasteigna hjá Sveitarfélaginu Árborg að gerð yrði loftgæðaúttekt á húsnæði skólans á Eyrarbakka.

Verkfræðistofan EFLA var fengin til verksins í desember 2021 og voru niðurstöður úr sýnatöku og drög að ástandsskýrslu húsnæðis sendar stjórnendum skólans og Árborgar nú fyrir helgi. Í niðurstöðunum kemur fram að myglu er að finna í húsnæðinu.

Um leið og bráðabirgðaniðurstöður lágu fyrir óskuðu stjórnendur eftir fundi með stjórnendum sveitarfélagsins til að ræða viðbrögð við skýrslunni. Á fundi sem fram fór 17. janúar var ákveðið að ekki væri forsvaranlegt að halda úti starfsemi í húsunum á Eyrarbakka og þau þar af leiðandi rýmd strax og vinna hafin við að finna tímabundið kennsluhúsnæði fyrir unglingastig skólans.

Því hefur stjórnendateymi BES í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs og bæjarstjóra ákveðið að skólahald falli niður hjá nemendum 7. -10. bekkja skólans dagana 19. – 21. janúar, eða á meðan lausna er leitað.

Stefnt er að því að skólahald hefjist á ný mánudaginn 24. janúar. Málavextir voru kynntir starfsmönnum og nemendum á unglingastigi eftir hádegi, þriðjudaginn 18. janúar. Upplýsingar um framvindu mála verða gefnar út eins fljótt og unnt er.

Nánari upplýsingar veita stjórnendur. Páll Sveins-son, skólastjóri, Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri

Random Image

Nýjar fréttir