4.2 C
Selfoss

Aukin samvera fjölskyldunnar

Vinsælast

Forvarnarteymi Árborgar býður íbúum sveitarfélagsins upp á fræðandi fyrirlestur frá Theodór Francis Birgissyni, klínískum félagsráðgjafa.

Theodór mun fjalla um fjölskyldulífið og mikilvægi samverustunda en í aðdraganda jóla er gott að minna sig á að aukin samvera barna með foreldrum sínum hefur eitt besta forvarnargildið.

Fræðslan fer fram á TEAMS þann 30. nóvember klukkan 20:30 og er opin öllum.

Linkurinn mun birtast hér þegar nær dregur.

Nýjar fréttir