7.1 C
Selfoss

Loftgæðamælingar við Selfoss vegna eldgoss

Vinsælast

Umhverfisstofnun fór þess á leit við sveitarfélagið í sumar að fá að koma upp loftgæðamælum á Selfossi sem lið í því að þétta net loftgæðamæla vegna eldgossins í Geldingadölum.

Umhverfisnefnd sveitarfélagsins tók málið fyrir á fundi sínum í júní og fól mannvirkja- og umhverfissviði að finna þeim hentuga staðsetningu.

Nú eru tveir mælar komnir upp og mælingar hafnar sem eru í nær-rauntíma og uppfærast á 10 mín. fresti.

Annar mælir brennisteinsdíoxíð (SO2) og brennisteinsvetni (H2S). SO2 kemur m.a. upp í eldgosum en H2S er t.d. helsta mengunaefnið sem kemur frá jarðhitavirkjunum. Þannig að þessi mælir mun koma til með að gefa upplýsingar um styrk H2S á Selfossi sem berst frá Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjunum.

Hinn er svifryksmælir. Hann mælir svifryk í þremur mismunandi stærðarflokkum, PM10, PM2,5 og PM1. Svifryk getur átt margskonar uppruna, gosmóðan margumrædda er t.d. fínt svifryk en einnig kemur svifryk frá umferð og svo auðvitað frá jarðvegsfoki.

Hægt ert að nálgast upplýsingar úr mælunum á vefsíðunni loftgaedi.is.

Nýjar fréttir