0 C
Selfoss

Gefðu framtíðinni tækifæri

Vinsælast

Næstkomandi laugardag göngum við til kosninga og veljum okkur þingmenn sem eiga að leiða okkur inn í framtíðina. Sjaldan hefur mikilvægi kosninga verið eins mikið og núna þó að sjálf kosningabaráttan hafi að mati sumra látið lítið yfir sér. Stóru málin eru hins vegar mörg en þó eru þeir til sem gera lítið úr þeim áskorunum sem bíða okkar.

Hafandi rætt við fjölda fólks undanfarnar vikur skynja ég að mikilvægi breytinga á samfélaginu okkar.

Unga fólkið okkar er að veita okkur áminningu á marga vegu. Mörg þeirra óttast um framtíð sína vegna þeirra loftlagsbreytinga sem nú eru að eiga sér stað og munu hafa áhrif á líf þeirra til framtíðar. Þá er heldur ekki hægt að ganga fram hjá því ákalli unga fólksins okkar um mikilvægi breytinga á samskiptamynstri, hvernig við hegðum okkur, hvernig við tölum hvert við annað og hvernig við leyfum okkur að fara yfir persónuleg mörk hvors annars.

Á þessar raddir þarf að hlusta og taka tillit til.

Heilbrigðisþjónusta á allra vörum

Þá eru flestir á einu máli um að heilbrigðisþjónusta sé í ólestri og við því verði að bregðast. Ég hef sem sveitarstjórnarmaður í langan tíma bent á þetta en talað fyrir daufum eyrum, því miður. Rekstrarform er að flækjast fyrir þegar þjónusta við íbúa á að vera í fyrsta sæti. Fólkið á ekki að vera fyrir kerfið heldur á kerfið að vera fyrir fólkið.

Afkomuöryggi skiptir máli

Því miður hafa margir áhyggjur af afkomu sinni og upplifa erfiðleika við að ná endum saman. Við því þarf að bregðast. Ef afkomuöryggi fólks er ekki tryggt fer flest annað á hliðina. Stjórnmálamenn geta brugðist við þessu, hafi þeir hugrekki til.  Það er á þeirra borði að bæta afkomu heimilanna og jafna kjörin.

Að forgangsraða rétt

Ég hef sem sveitarstjórnarmaður í rúma tvo áratugi lagt mig fram um að sýna ráðdeild í rekstri en forgangsraða um leið í þágu þeirra sem þurfa á því að halda. Ég mun halda því áfram fái ég til þess stuðning næstkomandi laugardag. Við þurfum að rjúfa þá kyrrstöðu sem viðgengist hefur um árabil.

Framtíðin bíður handan við hornið sem öllum sínum tækifærum og það er okkar að grípa þau til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir.

Ég er tilbúinn í slaginn og leita því til ykkar eftir stuðningi.

Gefðu framtíðinni tækifæri. Kjóstu Viðreisn X-C

Guðbrandur Einarsson
skipar 1. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi

 

 

Nýjar fréttir