2.8 C
Selfoss

Búast við 700 þátttakendum

Vinsælast

Hjólreiðahátíðin KIA Gullhringurinn fer fram laugardaginn 10. júlí næstkomandi á Selfossi en skipuleggjendur búast við um það bil 700 þátttakendum sem gerir hann að stærsta hjólreiðaviðburði ársins.

Samgönguráðherra ræsir KIA Gullhringinn

Mikil eftirvænting er bæði hjá þátttakendum, bæjarbúum og skipuleggjendum en hátíðin verður ræst í nýjum miðbæ á Selfossi sem opnar fyrsta áfanga sinn fyrir gestum sömu helgi. Þá er ekki allt upp talið því Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mun ræsa afreksflokkinn en hann ætlar einnig að hjóla í fjölskylduvegalengd hátíðarinnar.

Fjölskyldu- og rafmagnshjólaflokkar

KIA Gullhringurinn er stærsti hjólreiðaviðburður ársins og í ár er boðið upp á mun fjölbreyttari vegalengdir sem gerir hátíðina aðgengilegri fyrir fleiri þátttakendur. Hægt er að velja um sex mismunandi flokka sem eru frá 12 km og upp í 90 km. Boðið er upp á flokka með enga tímatöku eða svokallað samhjól og þá eru einnig flokkar sem eru opnir fyrir rafmagnshjólum en algjör sprenging hefur orðið í sölu á þeim. Votmúlahringurinn sem er Selfossbúum að góðu kunnur er stysta leiðin en hún er í minningum margra fyrsta „stóra“ hjólreiðaferðin í æsku þeirra.

Arnar Helgi Lárusson formaður SEM, Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra og fjölskylda hafa verið í fararbroddi í að vekja athygli á hreyfingu fyrir hreyfihamlaða.

Formaður SEM er heiðursgestur

Heiðursgestur hátíðarinnar er Arnar Helgi Lárusson sem nýlega hjólaði 400 km á sólarhring á handhjóli en hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa. Með ferðinni sinni vildi Arnar Helgi vekja athyli á hreyfingu hreyfihamlaðra og safna um leið peningum til að kaupa handhjól fyrir SEM, Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra. Arnar tekur með sér hóp hreyfihamlaðs hjólreiðafólks en með þessu vilja SEM og skipuleggjendur hátíðarinnar leggja áherslu á það að hjólreiðar eru fyrir alla og að hreyfing er mikilvæg fyrir alla.

Selfoss nýr heimavöllur

KIA Gullhringurinn fagnar 10 ára afmæli í ár en síðustu níu ár fór hátíðin fram á Laugarvatni. Í febrúar ákváðu skipuleggjendur hátíðarinnar að þekkjast boð Sveitarfélagsins Árborgar og eigenda Sigtúns sem eru að byggja nýja miðbæinn um að koma með keppnina í hjarta Selfoss og hjóla þaðan um Flóann í gegnum Stokkseyri og Eyrarbakka. „Fyrst og fremst erum við að færa hátíðina til að tryggja öryggi keppenda. Flóinn er fallegur og flatur að mestu og á laugardagskvöldum er umferð lítil þannig að hjólreiðafólk nýtur dagsins og kvöldsins í gleði og öryggi,“ segir Þórir Erlingsson. 

Þórir Erlingsson forseti mótstjórnar Víkingamótanna sem stendur fyrir KIA Gullhrings-hátíðinni ræsti þátttakendur í fyrra á Laugarvatni.

Gaman að koma með keppnina „heim“

„Því er ekki að neita að það að fá þessa fallegu umgjörð, sem nýi miðbærinn er, utan um hátíðina okkar og hjóla síðan í gegnum Stokkseyri og Eyrarbakka er bara yndislegt. Við erum nokkrir hérna í hópi skipuleggjenda sem eru aldir upp hérna á þessu svæði og okkur þykir gaman að koma með KIA Gullhringinn heim,“ bætir Þórir Erlingsson við en hann er forseti mótstjórnar Víkingamótanna sem stendur fyrir hátíðinni.

Sjálfbært og samfélagslega ábyrgt samstarf við Árborg

Samstarf okkar við Árborg er líka á forsendum sem við viljum kalla sjálfbærar en sveitarfélagið styður við framkvæmd mótsins í formi þríhliða samnings á milli okkar, þeirra, íþróttafélaga og björgunaraðila í sveitarfélaginu. Þannig er þetta fjáröflunarverkefni fyrir uppbyggingu og starfsemi þessara aðila og renna greiðslur beint til þeirra án aðkomu okkar. Þennan hátt höfum við haft á í Hveragerði í kringum Hengil Ultra-hlaupið sem er önnur keppni sem við höldum og þetta hefur reynst afskaplega vel þar.

Nýjar fréttir