4.2 C
Selfoss

Bregðast við vaxandi ógn af völdum gróðurelda

Vinsælast

Til að bregðast við vaxandi ógn af völdum gróðurelda hér landi hefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sett á laggirnar starfshóp um varnir gegn gróðureldum. Hópurinn fær það verkefni að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum í formi forvarna og fræðslu um gróðurelda, en hann er samsettur af sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Reynslan af baráttu við gróðurelda, bæði hér á landi og erlendis, sýnir að til að ná árangri þurfi að samstilla alla sem koma að slökkvistarfi eða verða fyrir áhrifum af gróðureldum og beina þurfi forvörnum og fræðslu þvert á samfélagið.

Til marks um aukna hættu af þurrum gróðri og eldsmat í náttúru Íslands þá hafa slökkvilið, víðsvegar af landinu, sinnt alls 67 útköllum vegna gróðurelda frá 9. apríl síðastliðnum. Ljóst er að gróðureldaváin er komin til að vera, m.a. fyrir tilstilli hnattrænu hlýnunar sem og aukinnar gróðursældar hér á landi. Slökkvilið og viðbragðsaðilar hafa brugðist hratt við krefjandi aðstæðum en styrkja þarf stoðir og bæta búnað þess fólks sem sinnir slökkvistarfi og björgunaraðgerðum.

Efla fræðslu um gróðurelda og auka viðbúnað slökkviliða og almennings

Eftirfarandi aðilar eiga sæti í starfshópi um varnir gegn gróðureldum: Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Félag slökkviliðsstjóra, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), Lögreglustjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsstofnun, Skógræktin, Veðurstofa Íslands og Verkís. Formaður starfshópsins er Regína Valdimarsdóttir, forstöðumaður á sviði brunavarna hjá HMS.

Starfshópurinn mun, sem áður segir, stuðla að umræðu og fræðslu um gróðurelda í samfélaginu. Þá mun hópurinn einnig kortleggja nauðsynlegar breytingar á lögum og reglugerðum er snerta gróðurelda og stuðla að breytingum þar sem þess reynist þörf. Síðast en ekki síst mun hópurinn einbeita sér að því að auka viðbúnað slökkviliða og almennings.

„Gróðureldar eru vaxandi vá hér á landi og við því verðum við að bregðast. Viðbragðsaðilar hafa staðið í ströngu síðustu vikurnar í ítrekuðum útköllum vegna gróðurelda sem hafa gert vart við sig víðsvegar um landið en nú ríkir hættustig og óvissustig almannavarna í nokkrum landshlutum vegna hættu á gróðureldum. Þessi nýstofnaði starfshópur mun taka til óspilltra málanna að bregðast við þessari vá sem gróðureldar eru, enda varðar þetta öryggi okkar allra. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er með málið í algjörum forgangi og stofnunin treystir því að árangur náist í gegnum samstarf við aðila starfshópsins. Allir eru af vilja gerðir að hindra að gróðureldar verði jafn stórt vandamál hér á landi og við sjáum hjá öðrum, segir Regína Valdimarsdóttir, forstöðumaður á sviði brunavarna hjá HMS.

 

Nýjar fréttir