4.2 C
Selfoss

100 milljónir til hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði

Vinsælast

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 360 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Af þeim fjármunum rennur 100 milljón króna framlag til hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði, en það er hæsti einstaki styrkurinn. Framlagið til Áss er vegna uppbyggingar á nýjum matsal og breytinga á eldhúsi.

Alls voru veittir Styrkir voru veittir til 24 verkefna. Um 250 milljónir króna renna til verkefna sem bæta munu aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum og laga aðstæður á heimilunum að viðmiðum ráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila. Önnur verkefni snúast um smærri viðhaldsverkefni og endurbætur á húsnæði hjúkrunarheimila víðsvegar um landið.

Nýjar fréttir