4.4 C
Selfoss

Fljúgandi byrjun hjá CS:GO liði Selfoss

Vinsælast

Lið Selfoss eSports í Counter Strike: Global Offensive (CS:GO) lék í gærkvöldi sinn fyrsta leik í 4. deild Rafíþróttasamtaka Íslands.  Andstæðingur kvöldsins var liðið Klakinn og er fyrirkomulagið þannig að leiknir eru tveir leikir.

Fyrri leikurinn var leikinn í Inferno og endaði með 16-4 sigri, fljúgandi byrjun.  Seinni leikurinn var leikinn í Overpass og eftir jafnan leik sigu Selfyss-ingar framúr og lönduðu nokkuð öruggum sigri 16-8.  Maður leiksins var valinn Kári „Toppur“ Kjartansson.  Liðið situr því í öðru sæti deildarinnar eftir fyrsta leikdag með 4 stig.

Næsti leikur Selfoss eSports í CS:GO deildinni er settur á næsta sunnudagskvöld en eftir er að staðfesta leiktímann.  Stefnt er á að senda leikinn út á Twitch-rás Selfoss eSports;  Twitch.tv/selfoss_esports. Við kynnum það betur þegar nær dregur og búið er að staðfesta leiktíma.

Nýjar fréttir