Matgæðingur vikunnar er Linda Dögg Sveinsdóttir.
Takk, Rakel mín, fyrir hlý orð í minn garð. Á dauða mínum átti ég nú von en ekki að ég yrði Sunnlenski matgæðingurinn. Ég hef notið þess að lesa margar dásamlegar uppskriftir frá öðrum hér í Dagskránni undanfarin ár og prófað nokkrar góðar. Af mörgu er að taka en ég ákvað að deila með ykkur uppskrift að grænmetislasagna sem kemur frá sr. Guðbjörgu Arnardóttur, kærri vinkonu minni. Uppskriftin er úr matreiðslubókinni Munngælur, sem Vallaskóli gaf út árið 2004, með uppáhalds uppskriftum starfsfólks þess tíma. Uppskriftin hefur aðeins verið aðlöguð á mínu heimili og mér finnst best að útbúa grænmetissósuna deginum áður og láta standa yfir nótt áður en ég geri sjálft lasagne-ið.
Grænmetis lasagne
200 gr. laukur
200 gr. gulrætur
200 gr. kúrbítur (zucchini)
1 bakki sveppir
2-3 hvítlauksrif
1 stór rauð paprika
2 dósir niðursoðnir tómatar
2 msk. tómatpasta (mauk)
2 tsk. oreganó
1 tsk. basil
1-2 grænmetisteningar
Salt/pipar
Ólífuolía
1-2 stórar kotasælur
Rifinn ostur/oststykki
Lasagne-plötur
Ég byrja á að hita olíu í potti og læt hana renna yfir botninn. Þá er að mauka lauk og hvítlauk fyrst í matvinnsluvél og bæta út í olíuna. Síðan er bara að mauka í vélinni hvert grænmetið á fætur öðru og bæta út í pottinn. Þá bæti ég tómatpastanu, kryddinu og myl grænmetistening saman við. Gott er að hræra vel á milli meðan er steikt. Síðan er lok sett á pottinn, látið krauma við vægan hita í 45 mín, hrært í reglulega á meðan og smakkað til með salti og pipar. Gott er að láta standa aðeins og kólna.
Byrjað er á að pensla eldfast mót með olíu og kveikja á ofninum, blástur 180°. Þá er að setja 1/3 af sósunni í formið og dreifa jafnt yfir botninn. Síðan er ostur settur ofan á sósuna (ég sker niður ost í sneiðar og legg yfir en það má að sjálfsögðu dreifa líka rifnum osti yfir) og svo lasagne-plötur. Kotasælan kemur næst og er jafnað yfir plöturnar (við viljum hafa vel af henni, því notum við vel hálfa) og svo 1/3 af sósunni jafnað yfir sæluna. Aftur ostur, plötur, kotasæla og restin af sósunni. Þá er að toppa með rifnum osti og elda í ofninum í 40 mínútur. Gott er að leyfa réttinum að kólna í 15 mín áður en byrjað er að skera. Á meðan er fínt að baka hvítlauksbrauð.
Hvítlauksbrauð, parmesanostur og ferskt grænmeti er meðlætið sem við veljum með réttinum.
Ég elska súkkulaði og góða desserta. Læt fylgja með uppskrift sem er einföld og góð. Uppskriftina er ég búin að eiga lengi en man ekki hvaðan hún kom.
Toblerone-súkkulaðimús
500 gr. Toblerone, saxað
150 gr. smjör
4 egg
600 ml. rjómi, þeyttur
Súkkulaði og smjör brætt við vægan hita og hrært þangað til blandan verður slétt. Þá er blandan tekin af hellunni og látin kólna í 5-7 mín., hrært í af og til. Eggin eru þeytt saman og þeim bætt við blönduna í nokkrum skömmtum og hrært vel í á milli. Rjóminn er stífþeyttur og 1/3 af honum blandað saman við súkkulaðiblönduna með sleif. Súkkulaðiblöndunni hellt út í restina af rjómanum, vafið saman með sleikju og blandað vel. Hellt í skál eða glös og kælt í a.m.k. 3 tíma eða yfir nótt. Borið fram með söxuðu Toblerone, berjum og þeyttum rjóma.
Verið ykkur að góðu!
Ég ætla að skora á mína yndislegu vinkonu, Hildigunni Kristinsdóttur, að vera næsti matgæðingur því hún er algjör töfrakona þegar kemur að matargerð, bakstri og öllu sem tilheyrir mat. Ég á nokkrar uppskriftir frá henni í mínu safni og hlakka til að sjá hvað þessi elska töfrar fram fyrir okkur.




