Fyrstu hlutar vindmylla fyrir Vaðölduver eru nú komnir til landsins eftir að flutningaskip lagðist að bryggju í Þorlákshöfn í fyrradag.
Um er að ræða mikilvægan áfanga í uppbyggingu fyrsta vindorkuvers Íslands. Skipið flutti meðal annars stórar einingar sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu, þar á meðal allt að 68 metra löng vindmyllublöð.
Vindmyllurnar eru ætlaðar fyrir Vaðölduver á hálendi landsins, þar sem áætlað er að reisa alls 28 vindmyllur á næstu árum. Verkefnið er í umsjón Landsvirkjunar og koma vindmyllurnar frá þýska vindmylluframleiðandanum Enercon. Þetta markar upphaf vindorkuframleiðslu í stórum stíl hér á landi.
Flutningar á búnaðinum frá Þorlákshöfn upp að virkjunarsvæðinu munu hefjast á næstu vikum og standa yfir í allt að tvo mánuði. Um er að ræða einhverja umfangsmestu þungaflutninga sem ráðist hefur verið í á Íslandi og fara þeir að mestu fram á nóttunni til að lágmarka áhrif á umferð



