First Water, sem sérhæfir sig í sjálfbæru landeldi, vinnslu og útflutningi á laxi frá Þorlákshöfn, hefur lokið um 11 milljarða króna fjármögnun. Um er að ræða útgáfu um 6 milljarða króna breytanlegs skuldabréfs sem leidd er af núverandi hluthöfum félagsins og um 5 milljarða króna lánsfjármögnun frá Landsbankanum og Arion banka.
Með fjármögnuninni mun félagið ljúka framkvæmdum við fyrsta áfanga í uppbyggingu félagsins og auka árlega framleiðslugetu úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn af slægðum laxi.
First Water hefur nú frá stofnun sótt um 28 milljarða króna í hlutafé, um 6 milljarða í formi breytanlegs skuldabréfs ásamt um 18 milljarða króna í lánsfé og þannig tryggt sér fjármögnun sem nemur alls um 52 milljörðum króna. Á síðasta ári komu þrír lífeyrissjóðir inn sem nýir hluthafar hjá félaginu og eru nú 8 af 10 stærstu lífeyrissjóðum landsins í hluthafahópi First Water. Fjárfestingarfélagið Stoðir er eftir sem áður stærsti hluthafi félagsins með 33% hlut.
Vikuleg slátrun hafin
First Water lauk við uppbyggingu átta 25 metra yfirbyggðra landeldistanka í fyrra og uppskar í fyrsta skipti 5 kg slægðan hágæða lax í september 2025.
Frá og með janúar á þessu ári hefur First Water hafið reglubundna uppskeru en meðalstærð við uppskeru hefur verið um 4,8 kg slægður með 95% yfirburðarhlutfalli (e. superior ratio) sem þýðir að 95% af fiskinum sem slátrað er fer í hæsta gæðaflokk. Gert er ráð fyrir því að heildaruppskera ársins 2026 verði um 3000 tonn slægður.

Eftirsótt hágæðavara hjá kröfuhörðum kaupendum
Sölustarfsemi First Water hefur gengið vel og hefur félagið selt stærstan hluta af uppskeru sinni til þessa til kaupenda í Evrópu og Bandaríkjunum. Félagið rekur fiskvinnsluhús í Þorlákshöfn með sérhæfðum vinnslulínum þar sem lax er unninn og pakkað til útflutnings vikulega.
Afurðir félagsins hafa vakið athygli á erlendum mörkuðum og meðal viðskiptavina First Water eru kröfuharðir aðilar sem þjónusta mötuneyti þekktra fjármála- og tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum og fyrirtæki sem dreifa ferskum hágæða matvælum í matvöruverslanir í Evrópu.
Aukin framleiðslugeta
Upphaflegar áætlanir First Water gerðu ráð fyrir að afköst landeldisstöðvarinnar yrðu samtals um 50.000 tonn á ári þegar stöðin væri full byggð og komin í fulla framleiðslu. Reynsla síðustu mánaða bendir til þess að framleiðslugeta félagsins verði meiri og er stefnt að því að framleiða um 60.000 tonn árlega af slægðum laxi. Þannig verður framleiðslugeta First Water um 20.000 tonn þegar fyrstu tveir áfangarnir verða komnir í fulla notkun.
Ráðgjafar First Water við skuldbréfafjármögnunina var ARMA Advisory og BBA Fjeldco. Arion banki og Landsbankinn leiða lánsfjármögnun félagsins.



