Á Selfossi hefur verið stofnað Plokkvinafélag og blæs það til sérstaks stofnplokks á laugardagsmorgun við Austurgarð á Selfossi. Plokkið hefst klukkan 11:00 og stendur til 13:00 og er eins konar forskot á sæluna fyrir Stóra plokkdaginn á sunnudag um allt land. Það er engin önnur en Elín Birna Bjarnfinnsdóttir yfirplokkari sem er formaður félagsins og verndari þess er Einar Bárðarson einn af forfeðrum plokksins á Íslandi.
Það er nóg að mæta bara
„Þetta verður heljarinnar gaman. Húsasmiðjan er búin að leggja okkur til tangir og poka þannig að það er nóg að fólk mæti bara tilbúið í slaginn. Svo er Grímur Kleina að senda okkur kleinur með kaffinu sem Tómas Þóroddson sendir okkur frá Kaffi Krús á eftir þannig að það fara allir sælir og glaðir frá þessu létta verki með okkur á laugardag,“ segir Elín Birna. Spáin fyrir helgina lítur vel út og það
Nánari upplýsingar
Það er ekkert aldurstakmark og það eru öll velkomin. Mæting verður eins og fram kemur hér að ofan klukkan 11:00 við verslunina Emil&Línu og þar verða fulltrúar fulltrúar Plokkvinafélagsins og afhenda tæki, tól og kenna tökin á plokkinu.



