1.7 C
Selfoss

Jólagluggi Árborgar – Vinningshafar 2019

Vinsælast

Heppnir Þáttakendur voru dregnir út í jólagluggaleik Árborgar 2019. Fjöldi barna tóku þátt en dregnir voru út þrír vinningshafar sem fengu afhenta vinninga frá Gísla Halldóri Halldórssyni, framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar.

Vinningshafar 2019 má sjá á meðfylgjandi mynd en það voru:
Tristan Freyr Guðmundsson, Ragnar M. Sigurbjörnsson og Svavar Orri Arngrímsson

Til hamingju snillingar!

Jólagluggaleikur Sveitarfélags Árborgar gengur út á að frá 1. desember til 24. desember opnar einn jólagluggi á dag í stofnun eða fyrirtæki í sveitarfélaginu og í hverjum glugga er geymdur einn bókstafur sem setja á inn í þátttökueyðublað.

Stafirnir mynda setningu sem í finnast svör við þeim spurningum sem þarf að svara. Eyðublaðinu er síðan skilað í bókasafn Árborgar Selfossi eða í Sundhöllina á Selfossi. Að lokum eru dregnir út þrír heppnir vinningshafar sem svarað hafa öllum spurningum rétt.

Sveitarfélagið Árborg þakkar fyrirtækjum og stofnunum sem tóku þátt í jólagluggunum 2019 kærlega fyrir þeirra framlag.

Nýjar fréttir