8.4 C
Selfoss

Komdu út að hlaupa

Vinsælast

Hlaupahópurinn Frískir Flóamenn hefur undanfarin ár æft undir styrkri stjórn Sigmundar Stefánssonar járnkarls með meiru. Engin breyting verður á því í vetur, Sigmundur mun halda áfram að þjálfa hópinn á komandi vetri.

Mjög góð mæting er á æfingar og hlauparar stefna að mismunandi markmiðum á hlaupabrautinni. Margir taka þátt í keppnishlaupum en svo eru líka aðrir sem hlaupa sér fyrst og fremst til heilsubótar og skemmtunar. Æfingatímar hópsins eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15 og á laugardögum kl. 10:00. Allir eru velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir og er frítt á allar æfingar.

Hópurinn hefur í nokkur ár unnið við brautargæslu við Laugavegshlaupið og það hefur gert hópnum kleift að greiða þjálfaralaun og standa fyrir ýmis konar viðburðum eins og Sólheimahlaupinu, fjöruhlaupi, aðventuhlaupi og þorrahlaupi, svo fátt eitt sé nefnt. Þá hafa Frískir Flóamenn séð um Jötunnhlaupið sem haldið er 1. maí ár hvert í samstarfi við Jötun Vélar.

Það er von Frískra Flóamanna að áhugasamir hlauparar sem ekki hafa áður æft með hópnum skoði þennan möguleika. Allir geta hlaupið á hvaða aldri sem er og það er aldrei of seint að byrja að hlaupa. Æfingarnar hefjast alltaf við Sundhöll Selfoss/World Class. Frískir Flóamann hlakka til að sjá sem flesta á æfingum í vetur.

 

 

Nýjar fréttir