1.7 C
Selfoss
Home Fréttir Leitað án árangurs í Þingvallavatni

Leitað án árangurs í Þingvallavatni

0
Leitað án árangurs í Þingvallavatni

Björgunarsveitarmenn voru við leit á Þingvallavatni í gær og notuðu við þá leit fjarstýrðan kafbát með myndavél. Kafbáturinn var settur út á völdum stöðum þar sem dýpi er á bilinu 30 til 50 metrar og fengust nokkuð góðar myndir af þeim svæðum en sjónsvið bátsins er um 40 metrar. Leit var hætt upp úr kl. 20:00 í gærkvöldi án árangurs. Svæðisstjórn og lögregla mun funda á miðvikudagsmorgun, annars vegar til að fara yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í og hins vegar skipuleggja leit með öðrum kafbáti sem stefnt er að því að nota á fimmtudaginn.

Frétt af Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.