-7.1 C
Selfoss
Home Fréttir Íþróttir Hjálparsveitir leita erlends ferðamanns í og við Þingvallavatn

Hjálparsveitir leita erlends ferðamanns í og við Þingvallavatn

0
Hjálparsveitir leita erlends ferðamanns í og við Þingvallavatn

Um miðjan dag í gær var lögreglunni á Suðurlandi tilkynnt um undarlegan hlut á floti á sunnanverðu Þingvallavatni, nærri Villingavatni.
Lögreglan fór á vettvang ásamt björgunarsveitum af svæði 3 og fannst fljótlega eins manns kajak, uppblásinn og með honum flaut bakpoki.
Við skoðun á bakpokanum kom í ljós að eigandi hans er erlendur ferðamaður sem hafði gist á tjaldsvæðinu á Þingvöllum nóttina áður.
Leitað var á og við vatnið í gærkvöld fram til kl. 22. Leit hófst að nýju í morgun um kl. 09. Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar leituðu í gær og munu björgunarsveitir halda áfram leitinni í dag, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan vinnur í því að fá upplýsingar frá aðstandendum ferðamannsins varðandi ferðaáætlanir og plön og nýtur við það aðstoð utanríkisþjónustu Utanríkisráðuneytisins.