0.3 C
Selfoss

Umferðin almennt til fyrirmyndar það sem af er helgi

Vinsælast

Skemmtanahald í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi hefur farið vel fram það sem af er helgi.

Nokkur útköll hafa komið til lögreglu vegna minnháttar umferðaróhappa og slysa. Þriggja bifreiða árekstur varð við Hveragerði um klukkan 14 í gær en meiðsli urðu engin. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu, sjúkraflutninga og björgunarsveita vegna göngumanns í Reykjadal sem hafði fótbrotnað. Björgunaraðilar komust fljótt á vettvang og báru viðkomandi að bifreiðastæði í Reykjadal þar sem sjúkrabifreið var staðsett. Ein líkamsárás hefur verið kærð til lögreglu.

Um klukkan 17:20 barst lögreglu tilkynning um veiðimann sem fallið hafði í Úlfljótsvatn við hólma neðan Steingrímsstöðvar. Fjölmennt björgunarlið var sent á vettvang og var viðkomandi fluttur meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku Landspítalans. Um var að ræða bandarískan ferðamaðnn á áttræðisaldri sem nú er látinn. Slysið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Suðurlandi og ekki að vænta frekari upplýsinga um það meðan sú rannsókn stendur.

Umferðarmál hafa verið fyrirferðarmikil undanfarinn sólarhring en 23 ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur frá því um klukkan 07:00 í gærmorgun. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota síma við akstur án handfrjáls búnaðar og 3 ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir ölvun við akstur. Nokkrum ökumönnum var gert að hætt akstri vegna áfengisáhrifa en voru undir viðmiðunarmörkum sem varða ökuleyfissviptingu.

Lögregla hefur haldið úti viðamiklu eftirliti og áætlar að afskipti hafi verið höfð af hátt í 1000 ökumönnum síðasta sólarhringinn þar sem kannað var með ástand þeirra, ökuréttindi ásamt ástandi bifreiða og eftirvagna.

Lögregla mun áfram halda uppi öflugu eftirliti á vegum úti. Ökumenn eru hvattir til að huga vel að ástandi sínu og ökutækja sinna og halda ekki af stað nema að hvort tveggja sé í lagi.

Random Image

Nýjar fréttir