0.5 C
Selfoss

Ný og gömul tónlist frá Póllandi á Sumartónleikum í Skálholti

Vinsælast

Sönghópurinn Simultaneo, frá Gdansk í Póllandi, heimsækir Sumartónleika í Skálholti helgina 13.–14. júlí næstkomandi. Á dagskrá helgarinnar eru m.a. pólsk barokktónlist, nýjar tónsmíðar, bæði pólskar sem og frá Eistlandi og Íslandi.

Simultaneo sérhæfa sig í flutningi gamallar og nútímatónlistar. Hópurinn einbeitir sér að því að finna líkindi milli þessara ólíku tónlistastefna og nýta hann við flutninginn. Simultaneo hafa komið fram víðsvegar á hátíðum tileinkuðum bæði gamalli og nýrri tónlist. Í ágúst munu þau taka þátt í alþjóðlegri vinnustofu í Helsinki undir stjórn Paul Hillier og sönghóps
hans, Theatre of Voices.

Á laugardeginum heldur Karol Kisiel stjórnandi Simultaneo fyrirlestur um pólska tónlist í Skálholtsskóla. Tónleikarnir verða síðan kl. 14:00 og kl. 16:00 og á sunnudag kl. 14:00.

Random Image

Nýjar fréttir