1.1 C
Selfoss

Fjölbreytt dagskrá á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn

Vinsælast

Skráning er hafin á Unglingalandsmót UMFÍ. Þjóðin þekkir auðvitað Unglingalandsmót UMFÍ enda er þetta frábær vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er á hverju ári um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótið er að þessu sinni fram á Höfn í Hornafirði.

Á Unglingalandsmót UMFÍ koma á hverju ári saman þúsundir barna og ungmenna ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá alla verslunarmannahelgina á heilbrigðum forsendum.

Mótið er fyrir börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára sem vilja reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða því er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna og alla aldurshópa. Þátttakendur á Unglingalandsmóti UMFÍ þurfa hvorki að vera skráðir í ungmenna- né íþróttafélag. Ef viðkomandi vill taka þátt í hópíþrótt, knattspyrnu, körfubolta eða annarri grein en er ekki í liði þá er hann eða hún sett í lið með jafnöldum sínum víða að frá landinu. Með þessu móti er mótið vettvangur nýrra kynna og gleði þar sem allir hafa kost á að njóta þess að taka þátt í íþróttum og hreyfingu.

Á Unglingalandsmóti UMFÍ verður boðið upp á íþróttakeppni og afþreyingu alla verslunarmannahelgina á Höfn. Öll kvöldin klukkan 21:00 verða kvöldvökur. Á þeim koma fram eldsprækir tónlistarmenn eins og DJ Sura, Evróvisjónstjarnan Daði Freyr,  Bríet, Úlfur Úlfur og Salka Sól, GDRN og Una Stef.

Nýjar fréttir