-1.5 C
Selfoss

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Suðurlandi

Vinsælast

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í þrítugasta sinn á morgun laugardaginn 15. júní. Hlaupið er langstærsti almenningsíþróttaviðburðurinn á Íslandi á hverju ári. Konur á öllum aldri koma saman á hlaupadegi og eiga skemmtilega stund þar sem sumar hlaupa en aðrar ganga. Í 30 ár hafa þúsundir kvenna um allt land notið þess að hreyfa sig saman í Kvennahlaupinu og í því hafa konur getað sameinað tvo mikilvæga þætti í lífinu, hreyfingu og samveru. Hlaupið er á meira en 80 stöðum um allt land sem og erlendis. Kvennahlaupið hefur meðal annars verið haldið í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Þýskalandi, Belgíu, Sviss, Lúxemborg, Mallorca, víða í Bandaríkjunum, Mósambík og Namibíu. Hvar sem konur eru niðurkomnar þá eru þær partur af einhverju stærra þegar þær taka þátt í Kvennahlaupinu.

Að vanda verður hlaupið á mörgum stöðum á Suðurlandi.

Hlaupið frá BYKO á Selfossi
Á Selfossi sér Kvenfélag Selfoss um að skipuleggja hlaupið.  Eins og síðast verða tvær göngu/hlaupaleiðir í boði 2,5 km og 5 km. Hlaupið hefst við BYKO í Langholti. Mæting við BYKO er kl. 10:45 og hefst hlaupið kl. 11:00. Byko býður svo þátttakendum upp á grillaðar pylsur eftir hlaupið og Sveitarfélagið Árborg býður frítt í sund.
Forskráning í hlaupið er fimmtudaginn 13. júní og föstudaginn 14. júní kl. 15–17:30 í Krónunni  og laugardaginn 15. júní kl. 9–11 í BYKO. Þátttökugjald fyrir 12 ára og yngri er 1.000 kr. og fyrir 13 ára og eldri 2.000 kr.
Kvennahlaupsnefnd Kvenfélags Selfoss hvetur stelpur og strákar á öllum aldri til að taka þátt í hlaupinu eða vera í klappliðinu við markið í Langholti.

Hlaupastaðir á Suðurlandi:

Hraunborgir Grímsnesi – Við þjónustumiðstöðina kl. 13:00 (2,5 km). Forskráning í þjónustumiðstöðinni.
Sólheimar Grímsnesi – Frá Grænu könnunni kl. 11 (2,5 km og 5 km).
Þorlákshöfn – Frá Íþróttamiðstöðinni kl. 11 (2 km, 4 km og 7 km). Forskráning í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn fimmtudaginn 13. júní kl. 16–18.
Stokkseyri – Frá sundlaug Stokkseyrar kl. 11 (2 km og 5 km)
Hella/Þykkvibær – Frá sundlauginni Hellu kl. 11 (1 km, 3 km og 5 km). Forskráing sundlauginni Hellu.
Hvolsvöllur – Frá Íþróttamiðstöðinni Hvolsvelli kl. 11 (3 km og 6 km). Forsala í Íþróttamiðstöðini 12. júní kl. 19–21 og 14. júní kl. 16–18.
Seljalandsfoss – Frá Seljalandsfossi kl. 14 (2 km og 4 km). Forskráing í síma 847 1657 og 487 8912.
Vík í Mýrdal – Frá íþróttamisðstöðinni kl. 11 (3 km, 5 km og 7 km).
Kirkjubæjarklaustur – Frá íþróttamiðstöðinni Klaustri kl. 11 (3 km, 5 km, 7 km og 10 km).

Fyrsta Kvennahlaupið var haldið 30. júní árið 1990 í Garðabæ og var það haldið í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ. Lovísa Einarsdóttir kom með hugmyndina frá Finnlandi og þótti við hæfi að bjóða upp á eitthvað nýtt sem höfðaði til almennings á Íþróttahátíðinni. Þarna var kjörið tækifæri til að vekja áhuga kvenna á líkamsrækt og útiveru. Markmiðið var að höfða til kvenna á öllum aldri þar sem ekki yrði keppt til sigurs heldur áttu konur að fá að hlaupa, ganga eða skokka mismunandi vegalengdir eftir því sem þær kysu sjálfar. Þannig er það enn þann dag í dag, engin tímataka og allir fara á sínum hraða þá vegalengd sem þeir kjósa.

Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Hver kona tekur þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að allir komi í mark á sínum hraða og með bros á vör. Það sem er svo skemmtilegt við Kvennahlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri. Mjög algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur fari saman í hlaupið og geri sér jafnvel glaðan dag saman að hlaupi loknu.

Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hlaupið heldur bara að mæta á hlaupastað. Þátttökugjald er 1.000 kr. fyrir 12 ára og yngri og 2.000 kr. fyrir 13 ára og eldri.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk á öllum aldri til að taka þátt og hlakkar til að sjá sem flesta í afmælishlaupinu. Einnig þakkar ÍSÍ Sjóva, aðal samstarfsaðilum Kvennahlaupsins, fyrir stuðninginn sem og öðrum samstarfsaðilum; Ölgerðinni, Nivea og Morgunblaðinu.

Alla hlaupastaði má finna inn á www.kvennahlaup.is

Random Image

Nýjar fréttir