3.4 C
Selfoss
Home Fréttir Dúfnaregistur Íslands eftir Tuma Kolbeinsson

Dúfnaregistur Íslands eftir Tuma Kolbeinsson

0
Dúfnaregistur Íslands eftir Tuma Kolbeinsson

Út er komin hjá Bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi bókin Dúfnaregistur Íslands eftir Tuma Kolbeinsson. Um er að ræða alhliða fræðslu- og skemmtirit um dúfur, sögu dúfna á Íslandi og handbók í dúfnarækt.

Hefur þú oft velt fyrir þér sögu dúfunnar? Hefurðu kannski aldrei leitt hugann að tengslum dúfunnar og mannsins? Hefur þú ræktað dúfur eða gefið þeim brauðmola á torgum eða almenningsgörðum, kannski niður við Tjörn? Þykja þér dúfur ógeðslegar eða gætirðu hugsað þér að hafa þær í matinn?

Þá er Dúfnaregistur Íslands bókin fyrir þig. Hún er allt í senn, sagnfræðirit, félagsfræðistúdía, ræktunarhandbók og uppspretta áhugaverðra staðreynda með matreiðsluívafi.

Dúfnaregistur Íslands er bókin sem inniheldur allt sem þú vissir ekki að þú vissir ekki um dúfur.