8.9 C
Selfoss

Flamenco gítartónleikar í Tryggvaskála

Vinsælast

Borgfirðingurinn Reynir Hauksson verður með gítar einleikstónleika í Tryggvaskála á Selfossi á morgun laugardaginn 6. apríl klukkan 20:30.
Reynir býr í Granada á Spáni og starfar þar sem flamenco gítarleikari. Hann hefur stundað það síðustu ár að halda í eina einleikstónleikaferð um Ísland ár hvert til að kynna þetta magnaða listform fyrir Íslendinga. Það heyrir til tíðinda þegar Flamenco er flutt á Íslandi, svo sjaldgæft er það. Forsala fer fram á Tix.is.

Nýjar fréttir