Ný vefgátt um vöktun veiðiáa

Urriðafoss í Þjórsá.

Veiðitímabilið fer brátt að hefjast og ekki úr vegi fyrir veiðimenn og aðra áhugamenn að kynna sér nýjan vef Hafrannsóknarstofnunar. Stofnunin hefur opnað á heimasíðu sinni sérstaka vefgátt um vöktun veiðiáa. Þar má finna fjölþættar upplýsingar sem varða laxeldi í sjó og vöktun veiðiáa í sambandi við það.

Á vefgáttinni eru m.a. veittar upplýsingar um veiðar og veiðistaði, upplýsingar um stofnstærð, fjölda áætlaðra eldislaxa skv. áhættumati, fjölda veiddra eldislaxa og hlutfall af áætlaðri heildarveiði. Einnig má finna upplýsingar um eldisstaði og fyrirtæki, áætlaða framleiðslu árið á undan og um strokulaxa. Þá er fyrirhugað að birta þar niðurstöður lúsatalninga.

Jafnframt geta þeir sem telja sig hafa veitt eldislax sent inn tilkynningu um veiðina á vefgáttina.