7.3 C
Selfoss

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Vinsælast

Uppbyggingarsjóður Suðurlands, sem er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands, hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi. Veittir eru styrkir til:

  • Menningarverkefna til að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.
  • Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna til að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi.

„Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að leggja inn umsókn að hafa samband við ráðgjafa sem starfa á vegum SASS. Þeir aðstoða og veita leiðbeiningar og ráð við gerð umsókna. Best er að hafa samband við okkur í síma eða með því að senda póst á veffangið styrkir@sudurland.is. Við hvetjum starfandi fyrirtæki á Suðurlandi sérstaklega til þess að sækja um. Ég leyfi mér að fyllyrða að öll eigi þau góða hugmynd sem vert er að sjá hvort ekki geti orðið að veruleika með styrk frá sjóðnum,“ sagði Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri SASS í samtali við Dagskrána.

Nýjar fréttir