6.1 C
Selfoss
Home Fréttir Lögreglumaður sætir ákæru eftir bílveltu á Suðurlandsvegi í fyrra

Lögreglumaður sætir ákæru eftir bílveltu á Suðurlandsvegi í fyrra

0
Lögreglumaður sætir ákæru eftir bílveltu á Suðurlandsvegi í fyrra

Lögreglumaður í lögreglunni á Suðurlandi sætir nú ákæru héraðssaksóknara vegna slyss sem varð þegar bifreið sem ölvaður ökumaður ók varþvinguð, með lögreglubifreið, út af Þjórsárdalsvegi í maí í fyrra og valt. Við slysið hlaut ökumaður umræddrar bifreiðar m.a. beinbrot.

Á vef lögruglunnar segir að lögregla búi við það að sæta skoðun á störfum sínum af hálfu ákæruvalds og eftir atvikum dómstóla í öllum sínum verkum. Það sé hinn eðlilegi farvegur þessara mála innan þess réttarvörslukerfis sem lýðræðið byggir á.

„Yfirstjórn embættisins hefur farið yfir málið og mat hennar er að þrátt fyrir útgáfu ákærunnar sé ekki tilefni til að breyta eða færa starfsvettvang viðkomandi starfsmanns með neinum hætti meðan á meðferð málsins stendur fyrir dómi. Embættið mun að öðru leiti en þessu ekki tjá sig um málið meðan á meðferð þess stendur fyrir dómstólum,“ segir á heimasíðu lögreglunnar.