3.4 C
Selfoss
Home Fréttir Þakklát kona sem endurheimti 70.000 krónur

Þakklát kona sem endurheimti 70.000 krónur

0
Þakklát kona sem endurheimti 70.000 krónur

Á lögreglustöðina á Selfossi kom í gær eldri kona sem kvaðst hafa tapað í Bónus á Selfossi umslagi sem í voru 70.000 krónur .

Í dag kom svo til lögreglunnar miðaldra kona sem kvaðst hafa fundið 70.000 króna umslag í Bónus á Selfossi og vildi skila því inn til lögreglu í þeirri von að eigandi þess fyndist.

Lögregan hafi samband við eiganda umslagsins sem var að vonum glöð við fregnirnar. Ræddu konurnar síðan saman símleiðis og merkja mátti mikið þakklæti af hálfu þeirrar sem endurheimt hafið fé sitt. Óskuðu þær hvor annarri gleðilegra jóla.