6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Ræktaði kannabisplöntur á sveitabæ í uppsveitunum

Ræktaði kannabisplöntur á sveitabæ í uppsveitunum

0
Ræktaði kannabisplöntur á sveitabæ í uppsveitunum

Gerð hefur verið krafa fyrir Héraðsdómi Suðurlands um farbann yfir litháískum karlmanni eftir að lögreglumenn handtóku hann á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu sl. þriðjudagsmorgun. Þar vann hann að ræktun kannabisplantna í töluverðu magni. Um er að ræða á fjórða tug fullvaxinna plantna og töluverðs magns af græðlingum. Maðurinn hefur kannast við að eiga ræktunina sjálfur. Hún var vel búin og unnt fylgjast með henni og húsinu þar sem hún fór fram með netmyndavélum úr fjarlægð.

Dómari tók sér frest til að úrskurða um kröfu lögreglu og verður maðurinn í haldi lögreglu fram að uppkvaðningu úrskurðarins. Maðurinn er búsettur í Litháen.