-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Þórey Hekla sigraði söngkeppni NFSu 2018

Þórey Hekla sigraði söngkeppni NFSu 2018

0
Þórey Hekla sigraði söngkeppni NFSu 2018

Þórey Hekla Ægisdóttir sigraði söngkeppni NFSu 2018, en keppnin fór fram síðastliðinn fimmtudag. Þórey Hekla söng lagið „It’s a man’s world“. Í öðru sæti varð Gígja Marín Þorsteinsdóttir með lagið „Turning tables“ og í þriðja sæti varð Kolbrún Katla Jónsdóttir með lagið „I have nothing“. Alls tóku tíu atriði þátt í keppninni að þessu sinni.

Sérstök verðlaun voru veitt fyrir sviðsframkomu og flott atriði. Þau verðlaun hlaut Hermann Snorri Hoffritz með flutningi á frumsömdu lagi.

Keppnin var glæsileg að venju, en þetta er langstærsti viðburður á vegum Nemendafélags FSu á hverri haustönn. Þema kvöldsins var „Taktu flugið“ og var íþróttahúsið skreytt hátt og lágt í samræmi við það.