![Reykur í íbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi Reykur í íbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/brunavarnir1.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi kom upp eldur í íbúð í fjölbýlishúsi við Álftarima á Selfossi. Slökkvilið og viðbragðsaðilar komu á staðinn og var reykkafari sendur inn í íbúðina til að bjarga konu sem þar var. Tókst það giftusamlega og var hún fluttur á Heilsugæsluna á Selfossi til aðhlyningar.
Íbúar á hæðinni í stigaganginum voru látnir yfirgefa fjölbýlishúsið á meðan verið var að reykræsta. Að því loknu fengu þeir að fara inn í íbúðir sínar aftur.