1.7 C
Selfoss

Tvennt í haldi lögreglu vegna brunans

Vinsælast

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur eftirfarandi fram:

„Kl. 15:53 í dag var tilkynnt um eld í einbýlishúsi á Selfossi. Slökkvistarf stendur enn yfir en mikill eldur var í húsinu og ekki unnt fyrir slökkvilið að komast inn vegna gríðarlegs hita. Húsráðandi og gestkomandi kona eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á eldsupptökum. Grunur er um að karl og kona hafi verið á efri hæð hússins þegar eldurinn kom upp. Þeirra er nú leitað.
Sérfræðingar tæknideildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðir til aðstoðar við rannsókn málsins.
Slökkvistarf stendur enn yfir. Vettvangur verður lokaður óviðkomandi eftir að því lýkur vegna vettvangsrannsóknar.
Frekari upplýsingar er ekki unnt að veita að sinni.“

Nýjar fréttir